Lyfjaheiti | Framleiðandi | Lyfseðilsskylt | SmPC | Tengiliður |
---|
UCB
Lyfjafyrirtækið UCB varð til við samruna fyrirtækjanna UCB og Celltech árið 2001. Fyrirtækin sameinuðust undir nafninu UCB (Union Chimique Belge). UCB hefur mikla reynslu og sérfræðiþekkingu á sviði líftæknirannsókna og þróun nýrra lyfja. Megináhersla er lögð á tvö meðferðarsvið: Sjúkdóma í miðtaugakerfi og bólgu-/ónæmissjúkdóma. UCB er leiðandi í heiminum í meðferð og úrræðum við flogaveiki. UCB býður m.a. lausnir og meðferðir við Parkinsonsjúkdómi, liðagigt og fótaóeirð.
Markmið UCB er að vera þekkt fyrir nýsköpun og þróun nýrra lyfja og vera leiðandi í rannsóknum á sviði sjúkdóma í miðtaugakerfi og bólgu-/ónæmissjúkdóma. Með mikilli framsækni, reynslu og ítarlegu rannsóknarferli í þróun nýrra lyfja leggur UCB áherslu á að sjúklingum bjóðist ávallt besta mögulega meðferð sem völ er á.
Helstu lyf UCB á Íslandi eru: Atarax, Dipentum, Keppra, Postafen og Vimpat. Höfuðstöðvar UCB eru í Belgíu og umboðsaðili á Íslandi er Vistor hf. Starfsmaður UCB á Íslandi er Sólveig Björk Einarsdóttir.
Allar nánari upplýsingar um UCB er að finna á: www.ucb.com
Hafðu samband
![$employee['employee_name'] : $employee['position']](https://vistor.is/wp-content/uploads/employees/employees_image/solveig_bjork_einarsdottir_.jpg)
Sólveig Björk Einarsdóttir
- Markaðsstjóri
- Klasi 2
- Sími: 535 7000
- GSM: 535 7000
- solveig(hja)vistor.is