Lyfjaumboð
Vistor er leiðandi á sviði sölu og markaðssetningar lyfja á Íslandi og leggur megináherslu á sveigjanleika, hreinskiptni og trausta samvinnu við umbjóðendur sína.
Innan Vistor er fjöldi lyfjaumboða sem ýmist skiptast niður á klasa eða eru starfandi í sjálfstæðum deildum. Klasarnir eru átta talsins, þar sem fleiri en eitt lyfjaumboð koma saman og tryggir Vistor að engir hagsmunaárekstrar séu á milli lyfjaumboða innan klasanna.
Lyfjagát
Telji einstaklingur sig fá aukaverkun af lyfi er honum ráðlagt að hafa samband við viðkomandi lækni til að tilkynna um aukaverkunina og til að læknirinn geti metið hvort breyta þurfi meðferð m.t.t. aukaverkunarinnar.
Einnig má tilkynna aukaverkunina til Lyfjastofnunar eða til lyfjafræðings í apóteki. Fyrir þau lyf sem Vistor er umboðsaðili fyrir má einnig tilkynna um aukaverkanir beint til Vistor, á póstfangið safety@vistor.is eða í síma 535-7000.
Eftir lokun skiptiborðs skal hafa samband við öryggisþjónustufyrirtæki okkar í síma 535-7035, vegna fyrirspurna um notkun lyfja eða annarra vara frá Vistor, tilkynninga um aukaverkanir eða innkallana sem ekki geta beðið þar til skrifstofa opnar á ný.