Dýraheilbrigði

Þjónusta sem áður heyrði undir dýraheilbrigðisdeild Vistor er nú hluti af Fánu ehf., nýju systurfélagi innan Veritas samstæðunnar.

Fána byggir á sama reynslumikla teyminu og hefur þjónustað dýralækna, bændur og fiskeldisfyrirtæki um árabil — nú með enn skýrari fókus og auknum slagkrafti.

Dýraheilbrigði Vistor er nú Fána ehf. Öll þjónusta, pantanir og samskipti haldast óbreytt.

Fjölbreytt vöruúrval

Fána ehf. hefur að bjóða vörutegundir margra þekktra og virtra framleiðenda og leggur áherslu á gott aðgengi viðskiptavina að þessum vörum og þjónustu þeim tengdum.

Sérhæfð þjónusta

Umhverfi dýralyfjamarkaðarins er sífellt að breytast bæði erlendis og á Íslandi. Með því að bjóða sérhæfða þjónustu í þessum málaflokki, frumkvæði auk faglegrar nýbreytni er Fána ehf. fýsilegur samstarfsaðili hvort heldur er fyrir lyfjaframleiðandann, lyfjabúðina og dýralækninn eða sérhæfð fyrirtæki og stofnanir innan landbúnaðargeirans.