Vistor 70 ára
Vistor fagnar 70 ára afmæli á þessu ári. Fyrirtækið var stofnað árið 1956 þegar sjö apótekarar tóku sig saman og stofnuðu innkaupasamband apótekara, Pharmaco hf. Á þeim tíma var erfitt að fá lyf til landsins og oft vantaði lyf í apótekin, sérstaklega úti á landi. Markmiðið var að tryggja að allir landsmenn hefðu aðgang að lyfjum, hvar sem þeir byggju.
Fyrstu áratugina sá Pharmaco um innkaup og innflutning lyfja fyrir apótek landsins. Fljótlega hófst líka lyfjaframleiðsla hér heima. Fyrirtækið varð umboðsaðili margra þekktra erlendra lyfjafyrirtækja og sá um dreifingu lyfja um allt land. Með tímanum bættust við lækningatæki, rekstrarvörur og heilsu- og snyrtivörur.
Árið 2002 urðu eigendaskipti þegar Hreggviður Jónsson eignaðist fyrirtækið og skömmu síðar, 2005, fékk fyrirtækið nafnið Vistor.
Í dag vinnur Vistor með fjölda alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og sér um skráningar lyfja, sölu- og markaðsmál og vinnur að því að ný lyf komist til íslenskra sjúklinga. Á litlum markaði eins og Íslandi, gerist það ekki af sjálfu sér. Vistor er stolt af því að hafa átt þátt í að koma mörgum mikilvægum meðferðum til landsins.
Hjá Vistor starfar öflugur hópur fólks með fjölbreytta menntun og reynslu. Margir hafa unnið hjá fyrirtækinu í fjölda ára og sumir í áratugi. Sú reynsla er einn helsti styrkur Vistor og það segir sitt um vinnustaðinn að fólk vilji starfa þar lengi.
Vistor þakkar starfsfólki, samstarfsaðilum og viðskiptavinum fyrir samfylgdina síðustu 70 ár og horfir björtum augum til framtíðar.
Starfsemin hefur breyst mikið á þessum 70 árum en markmiðið er enn það sama:
Vistor stuðlar að heilbrigði með því að tryggja aðgengi að lyfjameðferðum á íslandi – Vistor er styrk stoð við heilbrigðiskerfið