Vistor er stoltur styrktaraðili Læknadaga 2026!



Vistor er stoltur styrktaraðili Læknadaga, sem haldnir eru árlega í Hörpunni af Læknafélagi Íslands.

Í ár sóttu yfir 950 heilbrigðisstarfsmenn ráðstefnuna sem stóð yfir í fimm daga og bauð upp á fjölbreytta fræðslufyrirlestra og vinnustofur. Í samstarfi við markaðsleyfishafa stóð Vistor að fjórum hádegisfyrirlestrum á vegum styrktaraðila.

Með þátttöku sinni leggur Vistor áherslu á að auka aðgengi að nauðsynlegum lyfjum fyrir íslenska heilbrigðiskerfið og veita öflugan markaðsaðgang og viðskiptalega sérþekkingu fyrir samstarfsaðila á lyfjamarkaði.

Sjáumst aftur 2027!