Vistor hleypur í Reykjavíkurmaraþoninu fyrir nýtt hjarta Reykjadals
Starfsfólk Vistor ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og hlaupa til styrktar Reykjadal í samstarfi við móðurfélagið Veritas. Markmiðið er að safna fyrir nýjum matsal og eldhúsi sem verður hlýlegt, aðgengilegt og hannað fyrir öll þau börn og ungmenni sem dvelja í Reykjadal.
Reykjavíkurmaraþonið er einn stærsti almenningsíþróttaviðburður landsins og ár hvert velja þúsundir þátttakenda að hlaupa fyrir góð málefni. Fyrir okkur hjá Vistor er þetta frábært tækifæri til að sameina hreyfingu, samveru og samfélagslega ábyrgð.
Reykjadalur hefur frá árinu 1963 boðið fötluðum börnum og ungmennum upp á sumarbúðir, helgardvalir og fjölbreytta samveru þar sem vinátta og gleði eru í fyrirrúmi. Um 400 börn og ungmenni nýta sér úrræði Reykjadals á hverju ári. Matsalurinn hefur lengi verið hjarta staðarins, þar sem gestir koma saman og njóta máltíða og samverustunda. Nú er kominn tími á að endurnýja þessa mikilvægu aðstöðu svo hún geti áfram þjónað komandi kynslóðum.
Við hjá Vistor erum stolt af því að geta lagt þessu verkefni lið. Það er eitthvað sérstakt við að hlaupa saman að sameiginlegu markmiði og vita að hvert skref getur skipt máli. Við hlökkum til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, hvetja hvert annað áfram og leggja okkar af mörkum til að skapa betri aðstöðu fyrir börn og ungmenni í Reykjadal.
Viltu styðja við söfnunina?
Nánari upplýsingar um hlaupið og söfnunina má finna á vef Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Þar getur þú einnig heitið á hlauparana okkar og lagt málefninu lið.