Vistor hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA 2026
fyrirtækjum og stofnunum sem hafa náð markmiði Jafnvægisvogarinnar um að hlutfall hvors kyns sé að lágmarki 40% í efsta lagi stjórnunar.
Ísland er í 1. sæti á heimsvísu í jafnrétti kynjanna, 17. árið í röð, samkvæmt Global Gender Gap Report 2026 frá World Economic Forum. Það er sameiginleg ábyrgð samfélagsins að viðhalda þeirri stöðu og þar gegna fyrirtæki mikilvægu hlutverki með því að fylgja jafnrétti eftir í verki.
Hjá Vistor er litið svo á að jöfn tækifæri geri fyrirtækið sterkara, að betri samstarfsaðila og teymið öflugra. Vistor leggur því áherslu á að skapa vinnustaðamenningu sem byggir á virðingu, inngildingu og jöfnum tækifærum fyrir öll.
Vistor þakkar starfsfólki sínu og stjórnendum innilega fyrir þeirra framlag á hverjum degi.
Jafnframt óskar Vistor systurfélögum sínum, Distica og Stoð, innilega til hamingju með viðurkenninguna!