Amgen
Amgen, stærsta líftæknifyrirtæki heims, beitir vísindum og nýsköpun í viðleitni sinni til að bæta lífsgæði fólks. Fyrirtækið stefnir að því að verða fremsta lyfjafyrirtæki heims. Vísindamenn þess beita öflugum aðferðum frumu- og sameindalíffræði til þess að uppgötva, þróa og markaðssetja náttúruleg prótein, mótefni og litlar sameindir með það fyrir augum að örva sjúkdómsvarnir líkamans.
Heimasíða Amgen
Þróun og framleiðsla Amgen miðar að því að hjálpa sjúklingum með blóðsjúkdóma, krabbamein, bólgusjúkdóma, taugasjúkdóma og efnaskiptasjúkdóma. Lyf sem fyrirtækið hefur markaðssett eru Aranesp® (darbepoetin alfa), ENBREL® (etanercept), EPOGEN® (Epoetin alfa), Kineret® (anakinra), Neulasta® (pegfilgrastim), NEUPOGEN® (Filgrastim), Vectibix (panitumumab) og Prolia (denosumab). Fyrirtækið var stofnsett árið 1980, en heiti þess, Amgen, er samsett úr Applied Molecular Genetics. Hjá því starfa yfir 10.000 manns en starfsemin er í Bandaríkjunum, Japan, Ástralíu, Kanada og Evrópu.