Heilsa til langs tíma – hvað skiptir máli?

Á námsdeginum verður farið yfir nýjustu rannsóknir og hagnýta klíníska þekkingu um helstu þætti sem hafa áhrif á heilsu yfir lífsleiðina.

Helstu efni námsdagsins:

  • Greining, meðferð og forvarnir í beinþynningu
  • Efnaskiptaheilsa, insúlínviðnám og lífstílssjúkdómar
  • Mataræði og lífstíll sem meðferð
  • Áfengi og heilsa – hvernig tökum við samtalið?
  • Offita og “food noise” – frá skömm til skilnings

Markmiðið er að miðla þekkingu sem nýtist strax í daglegu klínísku starfi.