Framleiðandi: Zymetech
ColdZyme®
ColdZyme er munnúði sem notaður er gegn kvefi, til að draga úr einkennum kvefs og til að stytta tíma kvefeinkenna. ColdZyme dregur úr líkum á kvefi og styttir tíma kvefeinkenna ef það er notað frá upphafi einkenna.
Skoða vöru í vefverslun DisticaColdZyme® - 20ml
Innihaldsefni:
Glýseról, vatn, trypsín úr þorski, etanól, kalsíumklóríð, trómetamól og mentól.
ColdZyme® er án sykurs og inniheldur engin rotvarnarefni, glúten eða mjólkursykur.
Umhirða og geymsla:
Geymið ColdZyme® við stofuhita, við lægri hita en 25°C.
Geymsluþol vörunnar eru 36 mánuðir frá framleiðsludegi.
Sjá fyrningardagsetningu á flöskunni eða á umbúðum.
Sama geymsluþol gildir fyrir opnaðar sem óopnaðar flöskur.
coldzyme.is
Meira á coldzyme.isColdZyme®
Hvað er ColdZyme?
ColdZyme er munnúði sem notaður er gegn kvefi, til að draga úr einkennum kvefs og til að stytta tíma kvefeinkenna. ColdZyme dregur úr líkum á kvefi og styttir tíma kvefeinkenna ef það er notað frá upphafi einkenna.
Hvernig virkar ColdZyme munnúðinn?
ColdZyme er úðað í kokið þar sem það myndar þunna filmu sem verndar slímhúð koksins gegn veirum úr loftinu. Filman inniheldur virk náttúruleg sjávarensím sem hamla getu veiranna til að bindast við slímhúðina í kokinu og filman dregur þannig úr möguleika veiranna á að valda veikindum. Þannig minnkar ColdZyme líkurnar á að smitast af kvefi og styttir tíma veikindanna ef það er notað frá upphafi kvefeinkenna.
Hvernig á að nota ColdZyme?
Beinið stútnum að kokinu og úðið tvisvar.
Við kvefeinkennum:
Notið ColdZyme á 2-3 tíma fresti, u.þ.b. sex sinnum á dag. Notist meðan kveftímabilið stendur yfir. Hafið samband við lækni ef kvefeinkenni vara lengur en 10 daga.
Fyrirbyggjandi við kvefi:
Notið tvo úðaskammta þrisvar sinnum á dag, þó ekki lengur en 30 daga í senn.
Haldið meðferð áfram þar til einkenni eru horfin.