
Framleiðandi: Kenvue
Livostin
Livostin ofnæmislyf. Augndropar og nefúði. Verkar á 15 mínútum. Fæst í apótekum.
Skoða vöru í vefverslun Distica
Livostin augndropar
Livostin augndropar er andhistamín sem notað er við ofnæmisóþægindum eins og augnroða, þrota í augum, rennsli úr augum og augnkláða.
Livostin augndropar eru notaðir við ofnæmi af völdum frjókorna eða annarra loftborinna ofnæmisvalda frá t.d. gæludýrum, ryki eða myglu/sveppagróum. Livostin vinnur gegn ofnæmi með því að hindra áhrif histamíns. Það er histamín sem veldur roða, þrota, kláða og rennsli úr augum. Verkun Livostin hefst innan 15 mínútna.

Livostin nefúði
Livostin nefúði er andhistamín sem notað er við ofnæmisnefbólgu, sem einnig kallast nefslímubólga, en hún getur valdið nefstíflu, kláða og/eða nefrennsli. Livostin nefúði er notaður við ofnæmi af völdum frjókorna eða annarra loftborinna ofnæmisvalda frá t.d. gæludýrum, ryki eða myglu/sveppagróum.
Livostin nefúði hindrar áhrif histamíns í nefi. Histamín er efni sem losnar í vefjum líkamans í tengslum við ofnæmisviðbrögð og það getur t.d. valdið nefrennsli, nefstíflu og kláða í nefi. Verkun Livostin hefst innan 15 mínútna.
Livostin
Livostin augndropar
Upplýsingar um Livostin augndropa og við hverju þeir eru notaðir:
Livostin augndropar eru notaðir við ofnæmisóþægindum eins og augnroða, þrota í augum, rennsli úr augum og augnkláða. Livostin augndropar eru notaðir við ofnæmi af völdum frjókorna eða annarra loftborinna ofnæmisvalda frá t.d. gæludýrum, ryki eða myglu/sveppagróum.
Livostin vinnur gegn ofnæmi með því að hindra áhrif histamíns. Það er histamín sem veldur roða, þrota, kláða og rennsli úr augum.
Verkun Livostin hefst innan 15 mínútna.
Notkunarleiðbeiningar:
- Hristið dropaglasið vel og skrúfið tappann af. Fjarlægið hringinn af dropaglasinu þegar það er opnað í fyrsta sinn.
- Hallið höfðinu aftur.
- Þrýstið á botn dropaglassins og dreypið einum dropa varlega í augnkrókinn. Blikkið auganum um leið og neðra augnlokið er dregið niður, til að dropinn dreifist yfir allt augað.
- Með sama hætti skal gefa lyfið í hitt augað.
Skammtar:
Fullorðnir og börn: 1 dropi í hvort auga, 2 sinnum á dag.
Auka má skammtinn allt að 4 sinnum á dag. Hver dropi inniheldur u.þ.b. 15 míkróg a levobakastini. Halda skal meðferð áfram eins lengi og þörf krefur, þar til einkennin eru horfin.
Livostin augndropa má nota á meðgöngu og við brjóstagjöf.
Eftir að pakkning lyfsins hefur verið rofin má ekki nota innihaldið lengur en í 1 mánuð.
Livostin (inniheldur levokabastin), nefúði, dreifa og augndropar, dreifa. Livostin er notað gegn ofnæmisnefbólgu og ofnæmistárubólgu. Nefúða skal úða í hvora nösina. Augndropa skal dreypa í hvort augað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er McNeil Sweden AB.
Livostin nefspray
Livostin nefúði
Upplýsingar um Livostin nefúða og við hverju hann er notaður:
Livostin nefúði er notaður við ofnæmisnefbólgu, sem einnig kallast nefslímubólga, en hún getur valdið nefstíflu, kláða og/eða nefrennsli. Livostin nefúði er notaður við ofnæmi af völdum frjókorna eða annarra loftborinna ofnæmisvalda frá t.d. gæludýrum, ryki eða myglu/sveppagróum.
Livostin nefúði hindrar áhrif histamíns í nefi. Histamín er efni sem losnar í vefjum líkamans í tengslum við ofnæmisviðbrögð og það getur t.d. valdið nefrennsli, nefstíflu og kláða í nefi.
Verkun Livostin hefst innan 15 mínútna.
Notkunarleiðbeiningar:
- Fyrst á að snýta sér.
- Hristið flöskuna og fjarlægið síðan hlífðarhettuna.
- Fyrir fyrstu notkun á að úða nokkrum sinnum út í loftið þar til fínn úði fæst.
- Haldið úðaflöskunni eins og myndin sýnir. Hallið höfðinu lítið eitt fram. Lokið annarri nösinni með fingri og úðið í hina nösina.
- Úðið 2 sinnum og andið samtímis dálitlu lofti inn í gegnum nösina. Endurtakið þetta við hina nösina.
Skammtar.
Fullorðnir og börn: 2 úðaskammtar í hvora nös, 2 sinnum á dag.
Livostin (inniheldur levokabastin), nefúði, dreifa og augndropar, dreifa. Livostin er notað gegn ofnæmisnefbólgu og ofnæmistárubólgu. Nefúða skal úða í hvora nösina. Augndropa skal dreypa í hvort augað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi er McNeil Sweden AB.