Framleiðandi: Avia Pharma
Minifom
Minifom 100 mg/ml dropar til inntöku, fleyti
Innihaldsefni: Antifoam M 100 mg (dimeticon 1000 94 mg, vatnsfrí kísilkvoða 6 mg)
Minifom
Minifom 100 mg/ml dropar til inntöku, fleyti
Innihaldsefni: Antifoam M 100 mg (dimeticon 1000 94 mg, vatnsfrí kísilkvoða 6 mg)
Við hverju er Minifom notað?
Minifom er notað við ungbarnakveisu vegna uppsöfnunar lofts í maga og þörmum. Miniform dregur úr einkennum ungbarnakveisu með því að draga úr yfirborðsspennu sem veldur því að froðan brotnar niður og loftbólurnar hverfa. Minifom virkar beint á loftið í þörmunum og er ekki tekið upp í líkamanum. Full verkun lyfsins næst ekki fyrr en eftir nokkurra daga meðferð.
Minifom er einnig notað við undirbúning magaspeglunar (rannsókn á maganum með sérstökum speglunartækjum) og sem hjálparefni við röntgenrannsóknir þegar notuð eru skuggaefni (sérstök röntgenrannsókn) á maga og ristli.
Hvernig er Minifom notað?
Við ungbarnakveisu: 10 dropar gefnir með skeið fyrir hverja máltíð. Halda má meðferð áfram eins lengi og einkenni ungbarnakveisu eru til staðar. Komi engin verkun fram innan 2-3 daga skal hafa samband við lækni.
Meðganga og brjóstagjöf
Lyfið frásogast ekki og má nota á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur.
Minifom
Minifom 100 mg/ml dropar til inntöku, fleyti
Innihaldsefni: Antifoam M 100 mg (dimeticon 1000 94 mg, vatnsfrí kísilkvoða 6 mg)
30 ml