Dýraheilbrigði

Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum, heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi. Helstu vöruflokkar eru dýralyf, áhöld, tæki og rekstrarvara, fóður og bætiefni og örmerki. Vörurnar má skoða í vefverslun Distica með því að smella hér.

Vöruflokkar

Fjölbreytt vöruúrval

Vistor hf. hefur að bjóða vörutegundir margra þekktra og virtra framleiðenda og leggur áherslu á gott aðgengi viðskiptavina að þessum vörum og þjónustu þeim tengdum. 

Markmið deildarinnar eru skýr; að vera í fararbroddi í málaflokkum er varða dýraheilbrigði íslensks búpenings sem og gæludýra.

Sérhæfð þjónusta

Umhverfi dýralyfjamarkaðarins er sífellt að breytast bæði erlendis og á Íslandi. Með því að bjóða sérhæfða þjónustu í þessum málaflokki, frumkvæði auk faglegrar nýbreytni er Vistor hf. fýsilegur samstarfsaðili hvort heldur er fyrir lyfjaframleiðandann, lyfjabúðina og dýralækninn eða sérhæfð fyrirtæki og stofnanir innan landbúnaðargeirans.