Sanofi
Lyfjafyrirtækið Sanofi er eitt af leiðandi lyfjafyrirtækjum heims með yfir 100.000 starfsmenn í 100 löndum. Árið 2004 gerði Sanofi-Synthélabo yfirtökutilboð í Aventis Pharma sem leiddi til samruna og til varð lyfjafyrirtækið sanofi aventis. Í maí 2011 var nafn fyrirtækisins stytt í Sanofi. Fyrirtækið er franskt að uppruna, með höfuðstöðvar í París og á að baki margra áratuga sögu á sviði lyfjaþróunar og lyfjaframleiðslu.
Vefsíða framleiðanda
Sanofi hefur það að markmiði að rannsaka, þróa og markaðssetja ný lyf til að fyrirbyggja og meðhöndla sjúkdóma. Markaðsdeild Sanofi á Íslandi tók formlega til starfa 1. október 2005 í húsnæði Vistor hf, Hörgatúni 2, Garðabæ.
Rannsóknir og þróun: Um víða veröld starfa yfir 11.000 starfsmenn við rannsóknir og þróun í meira en 20 rannsóknarmiðstöðvum í þremur heimsálfum. Lögð er áhersla á að rannsaka nýjar lækningameðferðir.
Sanofi leggur megináherslu á rannsóknir og þróun lyfja á 8 sviðum: • Hjarta- og æðasjúkdómar • Æðastíflur • Sjúkdómar í miðtaugakerfi ( t.d. MS) • Krabbamein ( t.d. meðferð við brjósta-, lungna- og blöðruhálskrabbameini) • Efnaskiptasjúkdómar ( t.d. sykursýki) • Beinsjúkdómar ( t.d. beinþynning) • Bóluefni ( í samstarfi við Sanofi Pasteur / MSD).