Meðferð persónu- upplýsinga

Vistor hefur sett sér stefnu og reglur varðandi meðferð persónuupplýsinga til þess að tryggja að fyrirtækið fari eftir lögum íslenska ríkisins nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Persónuverndarreglur umsækjenda, starfsmanna og viðskiptavina - smelltu hér til að lesa

Fyrirspurnir

Allar fyrirspurnir varðandi persónuvernd má senda á netfangið personuvernd@vistor.is

Vefkökur

Vefkökur eru litlar textaskrár sem vafrinn sækir í fyrsta sinn sem farið er á vefsvæði. Vefkökur geyma upplýsingar sem vefsvæðið notar meðal annars til að bæta upplifun notandans og til að fylgjast með og greina notkun á vefsvæðinu. Sjá nánar hér.

Vistor notar vefkökur til að greina notkun á síðunni í því skyni að gera vefinn enn betri og aðgengilegri fyrir notendur og til að auka þjónustustig.

Vistor notar Google Analytics sem safnar vefkökum til vefmælinga. Google Analytics safnar upplýsingum nafnlaust og gefur skýrslur um þróun á vefsvæðum án þess að greint sé frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð og notkun á vefkökum. Einnig muna vefkökur fyrri heimsóknir notenda og stillingar notandans yfir ákveðinn tíma. Engar persónulegar upplýsingar eru vistaðar um notendur út frá þessum upplýsingum. Sjá nánar um Google Analytics hér og hér.

Ef þú vilt ekki nota vefkökur er hægt að breyta stillingum í vafranum sem þú notar þannig að þær vistast ekki eða vafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Hægt er að nálgast upplýsingar um eyðingu stillinga vefkaka hér.

Áframsending persónugreinanlegra  gagna til þriðja aðila

Vistor skuldbindur sig til þess að varðveita framangreindar upplýsingar á öruggan og  tryggan hátt.

Með notkun okkar á Google Analytics sendum við hins vegar frá okkur ópersónugreinanleg aðgangsgögn, þ.e. hvenær síðan var heimsótt, hversu lengi og hvaðan og þess háttar er greint fyrir tölulegar upplýsingar. Þetta notum við svo til að betrumbæta vefinn okkar.

Takmarkanir

Vistor áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum eftir því sem þörf er á. Við breytingu þá þarft þú að samþykkja skilmálana aftur.