Framleiðandi: Novo Nordisk
NovoPen® 6 & NovoPen Echo®
Margnota Insúlín snjall pennar
NovoPen 6 og NovoPen Echo Plus eru nýir, margnota snjallpennar sem skrá sjálfkrafa upplýsingar um insúlínskammt og tímann sem hefur liðið frá síðustu inndælingu.
Penninn gefur yfirlit yfir: Hvenær er insúlínið notað, hversu mikið insúlín er notað og hvaða áhrif hafa ákvarðanir varðandi inndælingar á blóðsykurinn.
Skoða vöru í vefverslun DisticaNovoPen® 6
Af hverju að nota NovoPen 6 og NovoPen Echo Plus?
Upplýsingar flytjast þráðlaust frá pennunum í síma notandans og tölvukerfi sem er hannað fyrir heilbrigðisstofnanir til að samþætta upplýsingar úr ýmsum tækjum til blóðsykurstjórnar í eina skýrslu. Þessi lausn kallast Glooko og er komin á markað á Íslandi.
- Skjárinn sýnir bæði fjölda eininga og tíma frá síðustu inndælingu (tt:mm:ss)
- Skráir sjálfkrafa allt að 800 inndælingar
- Yfirfærir inndælingargögn þráðlaust með nálægðarsamskiptatækni (NFC)
- Hægt að nota með iPhone§ og Android
- Auðvelt að nota og auðvelt að lesa af4
- Þarf ekki að skipta um rafhlöður eða hlaða
- 3 ára ábyrgð, 4-5 ára endingartími
- Hámarksskammtur: 60 einingar
- Skammtur í hverju þrepi: 1 eining
Fyrir þig:*
- Ráðgjöf byggð á meiri þekkingu
- Engin þörf á að áætla hvað einstaklingur hefur gefið sér (af insúlíni)
- Nákvæm yfirsýn yfir stærð og tímasetningu skammta
- Insúlín- og blóðsykursupplýsingar hlið við hlið**
Fyrir einstakling með insúlínháða sykursýki:
- Vegna skammtaminnisins hefur notandi ekki lengur áhyggjur af því hvenær síðasta inndæling var gefin og hvað margar einingar voru notaðar
- Betri yfirsýn yfir eigin insúlíngjafir
- Aukinn skilningur á insúlínnotkun
- Getur fengið ráðgjöf um meðferð sem er byggð á þeim insúlínskömmtum sem voru raunverulega gefnir
Umhverfisvæni valkosturinn
NovoPen 6 og NovoPen Echo Plus eru margnota pennar með endingartíma í allt að fimm ár. Þegar þeir tæmast þarf eingöngu að skipta um Penfill® rörlykjuna með insúlíninu, en ekki allan pennann. Penfill 3 ml rörlykjan er gerð úr endurvinnanlegu gleri.
Samstarfsaðilar á Íslandi
NovoPen 6 og NovoPen Echo Plus geta tengst eftirfarandi tölvukerfum á heilsugæslustöðvum/sjúkrahúsum, smáforritum og stuðningsforritum.
NovoPen Echo®
Af hverju að nota NovoPen 6 og NovoPen Echo Plus?
Upplýsingar flytjast þráðlaust frá pennunum í síma notandans og tölvukerfi sem er hannað fyrir heilbrigðisstofnanir til að samþætta upplýsingar úr ýmsum tækjum til blóðsykurstjórnar í eina skýrslu. Þessi lausn kallast Glooko og er komin á markað á Íslandi.
- Skjárinn sýnir bæði fjölda eininga og tíma frá síðustu inndælingu (tt:mm:ss)
- Skráir sjálfkrafa allt að 800 inndælingar
- Yfirfærir inndælingargögn þráðlaust með nálægðarsamskiptatækni (NFC)
- Hægt að nota með iPhone§ og Android
- Auðvelt að nota og auðvelt að lesa af4
- Þarf ekki að skipta um rafhlöður eða hlaða
- 3 ára ábyrgð, 4-5 ára endingartími
- Hámarksskammtur: 30 einingar
- Skammtur í hverju þrepi: 0,5 einingar
Fyrir þig:*
- Ráðgjöf byggð á meiri þekkingu
- Engin þörf á að áætla hvað einstaklingur hefur gefið sér (af insúlíni)
- Nákvæm yfirsýn yfir stærð og tímasetningu skammta
- Insúlín- og blóðsykursupplýsingar hlið við hlið**
Fyrir einstakling með insúlínháða sykursýki:
- Vegna skammtaminnisins hefur notandi ekki lengur áhyggjur af því hvenær síðasta inndæling var gefin og hvað margar einingar voru notaðar
- Betri yfirsýn yfir eigin insúlíngjafir
- Aukinn skilningur á insúlínnotkun
- Getur fengið ráðgjöf um meðferð sem er byggð á þeim insúlínskömmtum sem voru raunverulega gefnir
Umhverfisvæni valkosturinn
NovoPen 6 og NovoPen Echo Plus eru margnota pennar með endingartíma í allt að fimm ár. Þegar þeir tæmast þarf eingöngu að skipta um Penfill® rörlykjuna með insúlíninu, en ekki allan pennann. Penfill 3 ml rörlykjan er gerð úr endurvinnanlegu gleri.
Samstarfsaðilar á Íslandi
NovoPen 6 og NovoPen Echo Plus geta tengst eftirfarandi tölvukerfum á heilsugæslustöðvum/sjúkrahúsum, smáforritum og stuðningsforritum.
* Deiling gagna úr pennanum er háð því skilyrði að skjólstæðingur óski eftir að þeim sé deilt.
** Upplýsingar um insúlínskammta eru yfirfærðar frá NovoPen 6 og NovoPen Echo Plus. Upplýsingar um blóðsykursgildi eru yfirfærðar frá blóðsykursmæli eða frá glúkósanemum. Hvort tveggja er hægt að sjá hlið við hlið í ýmsum tækjum á heilsugæslustöð/sjúkrahúsi.
§ iPhone 7 eða nýrri tegund